Novadan Beer Line Cleaner Color er hreinsiefni sem er sérstaklega framleitt fyrir bjórdælur og lagnir tengdar þeim. Alkalískt hreinsiefni sem hreinsar allar gerðir af slöngum og lögnum. Hreinsar og sótthreinsar um leið, fjarlægir bjórleifar og önnur óhreinindi sem kunna að safnast fyrir í leiðslum. Beer Line Cleaner Color inniheldur sérstakt litarefni og litabreyting verður á vökvanum sem sýna þér hvenær kerfið er orðið hreint. Efnið hreinsast auðveldlega með köldu vatni.
Notkunarleiðbeiningar:
- Blöndun: 3% – 1 1/2 dl BLCC í 5 ltr af vatni eða 9 dl BLCC í 30 ltr af vatni
- Hitastig: mest +60°C
- Ef að kalt vatn er notað og bjórkælir er í gangi á meðan hreinsun fer fram þá skal halda hreinsun áfram í 20 mínútur og opna reglulega fyrir dælubúnað á meðan.
- Ef að um mjög óhreinar lagnir er að ræða má útbúa allt að 5% blöndu. Þetta á þó ekki við um “Brewmaster” lagnir, í þeim tilfellum skal hreinsunarferlið lengja í 30 mínútur með 3% blöndu.
Upplýsingar um efnið:
- Litur: Fjólublár
- Form efnis: Vökvaform
- Lykt: Klórkeimur
- Þyngdarstuðull: 1,20 kg/l
- pH (Vatnslausn): 12,5
Geymsla á Beer Line Cleaner Color: -15°C ? +35°C