3M Peltor Alert er heyrnarhlíf með útvarpi og umhverfishljóðnema. Hægt er að hækka og lækka í umhverfishljóðum svo að þú heyrir í umhverfinu án þess að það sé skaðlegt fyrir heyrnina en einnig er hægt að slökkva á umhverfishljóðinu. Peltor Alert er með innátengi 3.5mm og það er hægt er að tengja inn á hlífina MP3 spilara, síma eða talstöð en einungis til þess að hlusta, við talstöðvar þarf svokallað PTT eða Push To Talk ef að það á að notast við samskiptamöguleikann.
Upplýsingar
- Litur: Rauður
- Dregur úr hljóði allt að 30dB (SNR 30dB)
- FM móttakari
- Tengi 3.5mm fyrir MP3 spilara, síma, talstöðvum o.fl. (ATH inntakið er einungis til að hlusta/Inntakið takmarkast af 82dB)
- Rafhlaða 2xAA (1,2-1,5V)
- Endingartími raflaðna er allt að 70 klst
Aukahlutir
- Púðasett: HY81
- Vindhlíf á umhverfishljóðnema: M60/2
- Hleðslurafhlöður: ACK03 1700 mAh
- Hleðslutæki fyrir ACK03: FR03EU
- Rafhlöðulok: 1173 SV