Peltor WS Alert XP APP útgáfa, heyrnarhlíf með Bluetooth® Multipoint tækni. WS Alert XP heyrnarhlífin er með míkrafón sem að útilokar umhverfishljóð, heyrnarhlífina er hægt að tengja við “APP” eða réttara sagt smáforrit í síma til að auðvelda uppsetningu, stillingar o.fl.. Peltor WS Alert XP heyrnarhlífin tengist sem áður við 1 Bluetooth tæki svo sem tónlistarspilara (MP3), farsíma og talstöðvar.
Peltor WS Alert XP heyrnarhlífin verndar þig gegn umhverfishávaða en á sama tíma auðveldar þér að hafa samskipti í hávaðasömu umhverfi þar sem míkrafónninn á heyrnarhlífinni útilokar hávaða í umhverfinu. WS Alert XP er með innbyggt FM útvarp og stafræna stöðvaleit.
Hægt er að fá WS Alert XP heyrnarhlífina annaðhvort með höfuðbandi eða fyrir öryggishjálma.
Helstu eiginleikar
- Fást á höfuðspöng sem og fyrir 3M Peltor öryggishjálma
- Hægt að stilla umhverfishljóðnema þ.e.a.s. hægt að hækka eða lækka í umhverfishljóðum
- Tveir litir af skeljum koma með í pakkanum bláar og bleikar
- Hlífarnar eru með tvískiptar skeljar sem minnkar möguleika á því að sviti komist í rafbúnað og tæri hann.
- Bluetooth® MultiPoint tækni sem leyfir tengingu við 2 tæki í einu
- Stillingar eru talsettar þannig að hlífin endurtekur allt sem þú ert að gera
- Innbyggt FM útvarp sem takmarkar spilun (hávaða) við 82 dB
- Stafræn stöðvaleit
- Möguleiki á að vista 4 útvarpsstöðvar
- Veitir vörn fyrir hávaða upp að 94-105 db
- Lætur vita þegar rafhlöður eru orðnar lágar í hleðslu
- Heyrnarhlífin slekkur á sér eftir 4 klst til að spara rafhlöðu
- Hægt er að hlaða heyrnarhlífina ef þú ert notar NiMH hleðslurafhlöður
Til þess að hlaða hlífina þarft þú eftirfarandi
- Hleðslurafhlöður AA
- Peltor FR08 sem er breytistykki 230V yfir í USB (getur notað aðra USB hleðslukubba)
- Peltor FR09 sem er hleðslutækið sjálft, það tengist í USB tengi t.d. FR08
Ítarlegri upplýsingar eru í fylgiskjölum