Hreinsun á vatnslögnum hjólhýsa og húsbíla

Það er nauðsynlegt að hreinsa neysluvatnstanka í fellihýsum, hjólhýsum sem og húsbílum allavega einu sinni á ári helst 2 sinnum. Best er að hreinsa neysluvatnstankana í upphafi ferðaárs. Hér á íslandi standa fellihýsin, hjólhýsi og húsbílar oft hreyfingarlaus yfir vetrartímann og oftast með einhverju vatni í neysluvatns-tankinum. Á geymslutímanum getur vatnið fúlnað í tönkunum og í  því myndast örverugróður og bakteríur ásamt því að það verður oft ólykt af því.

Athugið að vatn sem er með örverum og sýklum getur valdið óþægindum í maga, niðurgangi og jafnvel valdið þvagfærasýkingu, þetta fer þó mismunandi í fólk og ekkert algilt í þessu. Passið upp á að halda vatni og vatnslögnum ferskum og í góðu lagi. Þetta á að sjálfsögðu líka við venjulega vatnsbrúsa líka 5, 10 og 20 lítra eins og oft er ferðast með, það er létt að hreinsa þá, fylgja sömu leiðbeiningum og eru hér að neðan.

Hvernig veit ég hvort að það eru komnar bakteríur eða örverugróður í vatnið?

Ef að vatnið er slepjulegt / slýkennt, það er ólykt af því eða bragðvont þá eru miklar líkur á því að það sé eitthvað líf sé byrjað að myndast í vatninu.


Hvernig á að þrífa vatnstanka í ferðavögnum?

Hjá Kemi færð þú efni sem heitir því einfalda nafni “Vatnslagnahreinsir”, það er sérstaklega gert til hreinsunar og sótthreinsunar á neyslulögnum. 1 líter dugar til hreinsunar á forðatanki sem tekur 30-35 lítrar af vatni. Efnið inniheldur litarefni sem lætur þig vita hvenær þú ert búinn að skola því út úr öllum löngum.

Einnig má nota 15% klór (sterkur klór) til þess að sótthreinsa vatnstanka og neysluvatnskerfi. hann er notaður mjög víða til sótthreinsunar í matvælaiðnaði s.s. fisk- og kjötvinnslum, einnig er hann notaður til sótthreinsunar á vatnstönkum skipa og báta. Við eigum 15% klór í 10 lítra einingu, það er minnsta einingin sem hægt er að fá.

Til að ná sem bestum árangri með 15% klór er æskileg blöndun 0,13-0,2dl í hverja 10 lítra af vatni. Þessa blöndu þarf síðan að margfalda miðað við stærð á vatnstanki.

Verðin á þessum vörum má sjá hér fyrir neðan:


Leiðbeiningar fyrir hreinsun með 15% klór

  1. Tæmdu út það vatn sem er á neysluvatnstankinum, yfirleitt er botntappi/krani á lögninni.
  2. Taktu síuna úr ef að hún er fyrir hendi (hún er alls ekki í öllum svona kerfum), síunni er hent svo að þú þarft nýja síu.
  3. Blandaðu 0,13-0,2 dl af 15% klór út í hverja 10 lítra af vatni og miðaðu við það magn sem vatnstankurinn tekur, fylltu hann upp í topp.
  4. Skrúfaðu frá krönum til að fá klórvatnið í lagnirnar og fylltu svo aftur upp í topp á forðatankinum.
  5. Láttu klórvatnið standa í öllum lögnunum í 10-20 mínútur og skolaðu það svo út í gegnum kranakerfið.
  6. Fylltu með fersku vatni á forðatankinn 2 til 4 sinnum og tappaðu beint af honum í gegnum botnkranann.
  7. Skolaðu síðan með fersku köldu vatni í gengum alla krana og skolaðu allar lagnir mjög vel.
  8. Það getur þurft að endurtaka þetta ferli ef að örverugróður eða mikið slý hefur verið í vatnstankinum.

Athugið! Klór er ekki hreinsiefni heldur er hann sótthreinsiefni og eyðir sýklum og örverum. Þegar þrifið er með Klór sem og öllum sterkum efnavörum skal ávallt fylgja leiðbeiningum

Hafðu ávallt öryggi þitt í huga að:

  • Vera með persónuhlífar s.s. öryggisgleraugu, grímu og hanska.
  • Fara varlega með efnavöru eins og Klór, hann er ætandi og ertandi og hættulegur við innöndun.
  • Lofta vel ef þú ert innandyra.

Í Kemi færð þú mikið úrval af hreinsiefnum, sótthreinsiefnum og að sjálfsögðu allt til þess að þrífa bílinn, ferðavagninn að innan eða utan. Einnig erum við með niðurbrotsefni frá Walex sem ætluð eru fyrir ferðasalerni.