Mygla í tjaldvögnum og tjöldum

Myglueyðing í tjöldum og tjaldvögnum

Er komin mygla í ferðavagninn þinn?

Þegar búið er að sækja tjaldvagna og tjaldbúnað úr geymslum fyrir sumarið getur ýmislegt komið í ljós, til dæmis mygla sem er afar leiðinlegur ferðafélagi. Mygla getur til dæmis myndast ef tjaldbúnaði er pakkað saman án þess að honum sé leyft að þorna almennilega. Þegar tjaldbúnaði er pakkað niður í bleytu þá borgar sig að opna hann þegar heim er komið og láta hann þorna vel.

Það getur verið heilsuspillandi að sofa í mygluðu tjaldi eða í návist við myglu þar sem maður andar að sér myglugróinu. Fólk er misnæmt fyrir myglu en hún getur valdið óþægindum í öndunarfærum, höfuðverk, sviða í öndunarfærum, nefrennsli, sviða í augum sem og almennum slappleika. Þetta á sérstaklega við um fólk sem er veikt fyrir í öndunarfærum og lungum. Myglu getur einnig fylgt óþefur sem er oft kölluð fúkkalykt þó að sú skilgreining sé ekki alveg algild en lyktin af myglu getur verið missterk.

Oft er erfitt að þrífa myglu úr tjaldbúnaði. Þrifin geta að vísu reynst miserfið eftir því á hvaða stigi myglan er og hversu dreifð hún er. Þegar mygla er orðin kolsvört og tjaldbúnaðurinn mjög blettóttur þarf að ráðast í allsherjarþrif með sterkum myglueyðandi efnum. Eftir slík þrif er nauðsynlegt að þurrka tjaldbúnaðinn vandlega og lofta mjög vel um tjöldin og rakaverja þau að því loknu.

Svampdýnur – Er hægt að þrífa þær?

Við mælum ekki með því að þrífa svampdýnur. Ef um hefðbundnar svampdýnur er að ræða getur hreinlega borgað sig að kaupa nýjar í stað þess að leggja í efniskostnað, mikla vinnu og fyrirhöfn sem ekki er alls víst að beri tilætlaðan árangur.

Þegar svampdýnur sem eru orðnar myglaðar og illa lyktandi getur verið mjög erfitt að þrífa þær almennilega. Dýnurnar eru misþéttar í sér og það getur tekið mjög langann tíma að þrífa þær með hreinsiefnum og skola hreinsiefnin úr dýnunni eftir slík þrif, einnig tekur þurrkun mjög langan tíma.

Hvernig er best að þrífa myglaða ferðavagna og tjöld ?

Mildex-Q er öflugasta myglueyðandi efnið sem við eigum til. Það er sterkt efni og inniheldur klór, en klórinn hjálpar til við að eyða svörtu blettunum eftir mygluna sem virðast oft vera fastir í tjöldunum. Mildex-Q myglueyðirinn vinnur gríðarlega vel á blettum af þessu tagi og nær þeim úr í langflestum tilfella við fyrstu þrif. Þó getur þurft að endurtaka þrifin í einhverjum tilfellum ef tjaldið er mikið myglað og með svörtum myglublettum.

Tjöld eru yfirleitt gríðarlega litföst og meðal sterkustu tauefna sem notuð eru en það borgar sig að prófa fyrst.

Mildex-Q hefur einnig sótthreinsandi virkni og því er ekki þörf á sérstakri sótthreinsun að þrifunum loknum.

Við höfum leiðbeint fjölda fólks undanfarin ár við þrif á myglu í tjaldvögnum og tjaldbúnaði. Eftir slíka hreinsun öðlast tjaldið og tjaldvagninn nýtt líf en með því má einnig stuðla að öruggari dvöl fyrir tjaldbúana.

Mildex-Q hentar einnig á sturtur, sturtubotna, kverkar í votrýmum þar sem mygla safnast og á marga fleiri staði. 

Mygluhreinsun með Mildex-Q

ATHUGIÐ! Áður en hafist er handa við þrif: Prófið Mildex-Q ávallt á lítt sjáanlegum stað á tjaldinu til að sjá hvernig tauefnið bregst við.

  1. Úðið Mildex-Q yfir svæði sem á að meðhöndla og látið standa í 5–15 mínútur. Bleytið vel með Mildex-Q í erfiðum blettum.
  2. Stundum þarf einnig að þrífa tjaldbúnað að innanverðu þó svo að það sé ekki eins algengt.
  3. Skolið vel með köldu eða volgu vatni. Farið varlega ef þið eruð að skola með háþrýstidælu, krafturinn í þeim getur rifið tjaldið.
  4. Ef það eru ennþá blettir í tjaldinu má endurtaka liði 1–3.
  5. Látið tjaldið þorna mjög vel.
  6. Rakaverjið flötinn, hugið sérstaklega vel að svæðunum í kringum sauma og rennilása.
  7. ATHUGIÐ! Það er nauðsynlegt að vatnsverja búnaðinn eftir þrifin, annars er nánast öruggt að tjaldið muni leka. Flestöll sterk hreinsiefni, s.s. Mildex-Q, leysa upp vatnsvörnina.

Hér neðar á síðunni má sjá hluta af þeim efnum sem við bjóðum til að raka- og vatnsverja.

Önnur myglueyðandi sótthreinsiefni

Vatnsvörn fyrir tjaldbúnað og útivistarbúnað

Enginn vill vakna holdvotur um miðja nótt í útilegunni. Eftir öflug þrif með myglueyðandi efnum er nauðsynlegt að vatnsverja tjaldbúnaðinn að nýju þar sem hreinsiefnin eru sterk og leysa upp vatnsvörnina. Vatnsvörnin veðrast einnig af með tímanum, sama hvort búnaðurinn hefur staðið í sól, rigningu eða vindi. Það er gott að venja sig á að byrja ferðasumarið á að vatnsverja tjaldbúnaðinn og fara vel yfir alla sauma og meðfram rennilásum. Leki byrjar oftast að smita með saumum og rennilásum og á þeim flötum sem verða mest fyrir veðri og vindum. Best er að vatnsverja tjöldin ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti en með því verða öll þrif léttari og óhreinindi binda sig ekki eins vel við búnaðinn.

Kostnaður við að vatnsverja er ekki mikill en það eykur einnig endingu tjaldanna til muna. Að auki er vert að nefna að Nikwax vatnsvörnin inniheldur sólarvörn sem ver efnið gegn UV geislum sólar og upplitun efnisins. Vatnsvarnarefni er hægt að fá hér í vefverslun sem og í verslun Kemi að Tunguhálsi 10, við sendum um allt land.

Almenn þrif á ferðavögnum og húsbílum

Hjá Kemi færð þú allt sem þú mögulega þarft til að þrífa og viðhalda ferðavagninum, hjólhýsinu og húsbílnum.

Við bjóðum upp á gott úrval af hreinsiefnum og bónvörum sem henta á plastefni í tjaldvögnum og hjólhýsum sem og allt til að þrífa glugga, plastglugga og innréttingar.

Cleaner Degreaser frá Oil Eater hefur til dæmis verið vinsælt í þeim tilgangi. Cleaner Degreaser hentar vel til að þrífa öll plastefni og er frábært í ferðavagna, húsbíla, hjólhýsi, báta og á aðra fleti úr plasti. Ef þú stendur í allsherjarþrifum þá mælum við hiklaust með að þú kippir með þér Oil Eater Cleaner Degreaser.

Cleaner Degreaser er líka tilvalið á útigrillið, felgurnar, gólfið í skúrnum, bletti í fatnaði, í heita pottinn og margt fleira. Efnið fæst í nokkrum stærðum.

240 kr.177.390 kr.

Lyktaryeðing

3.370 kr.457.917 kr.
Vara væntanleg

Hreinsiefni fyrir baðherbergi

Solar Flare lyktareyðandi hreinsiefni

2.548 kr.8.424 kr.