Motip Impregnation Spray er vatnsvörn sem hentar fyrir margskonar tauefni, áklæði og leður og er einnig frábært á tjöld og tjaldbúnað sem og útilegubúnað, bakpoka og margt annað. Hrindir frá vatni og óhreinindum. Myndar mjög þunna langvarandi vatnsvarnarhúð sem andar.
Notkunarleiðbeiningar
- Best er að hafa spreybrúsann við herbergishita, efnið virkar best við +10°C upp að +25°C.
- Yfirborðið sem á að rakaverja á að vera hreint og þurrt.
- Hristið brúsann mjög vel í 2 mínútur fyrir notkun.
- Úðið vatnsvörninni yfir það svæði sem á að rakaverja.
- Hreinsið stútinn á brúsanum með því að snúa honum á hvolf og úða úr honum í 5 sekúndur.