B1 Marine frá K2 massi / massabón sem ætlað er á báta s.s. gel coat og bátalakk o.þ.h.. Hentar til notkunar með bónvél loft eða rafmagns. B1 Marine hentar einnig á ýmiskonar yfirborð á húsbílum og hjólhýsum og hefur gefið góða raun á slík tæki.
Leiðbeingingar:
- Notið með stífum massapúða (t.d. Duraflex L611 / L641) eða miðlungs stífum massapúða (t.d. Duraflex L612 / L642) en stífleiki massapúðans veltur á rispum á yfirborði lakksins.
- Yfirborðið ætti að vera hreint áður en mössun fer fram.
- Hristið brúsann vel fyrir notkun.
- Setjið massabón á massapúða og dreifið úr því á mjög lágum snúning til þess að efnið slettist ekki, aukið svo við snúninginn og massið þar til flöturinn er orðinn vel glansandi.
- Best er að taka þetta fyrir í pörtum og látið massann ekki þorna á plasthlutum.
- Ekki bóna í beinu sólarljósi, þetta á við um massabón sem og flest öll önnur bón.
- Eftir mössun, strjúkið yfir með hreinum örftrefjaklút.
- Gott er að bóna eftir mössun með góðu bóni, það veltur á því hvað tæki er verið að massabóna hvernig bón er valið eftir mössun.