K2 Roton Pro er gríðarlega öflugur felguhreinsir, svokallaður blæðandi felguhreinsir. Sérstaklega þróuð gelkennd efnablanda til að vinna vel á erfiðum óhreinindum af álfelgum, krómfelgum og máluðum felgum. Roton Pro er þykk blanda sem situr vel á yfirborðinu, smýgur inn í óhreinindin og leysir þau upp, fjarlægir m.a. sót, bremsuryk, tjöru og önnur vegaóhreinindi. Roton Pro má líka nota á lakkaða fleti.
Notkun:
Úðið Roton Pro yfir felgurnar og látið standa, efnið skiptir um lit og verður dökkrautt (bleeding wheels), þegar sá litur er kominn á felgurnar má skola efnið af og best er notast við háþrýstidælu. Endurtakið ferlið ef þörf þykir.