Bosch C70 Battery Charger 12/24V – Bosch C70 10A er mjög skilvirkt, hraðvirkt hleðslutæki og vaktari fyrir rafgeyma, hentar fyrir bæði 12V og 24V blý-sýrugeyma, EFB, GEL, AGM, EFB (Start/Stop) rafgeyma. Það má eiginlega kalla Bosch C70 snjall-hleðslutæki því það er þannig uppbyggt að það les stöðuna á kerfinu og hleður og heldur við eftir því.
- Bosch C70 hleðslutækið er einfalt í notkun, einn hnappur stjórnar aðgerðum. LED ljós lætur þig vita hver staðan er á tækinu, hvort það er að hlaða eða hvort rafgeymir er fullhlaðinn.
- Tækið er eins þétt og fyrirferðarlítið og hægt er, það kemur í handhægri tösku sem geymir allt sem tengist tækinu. Passar vel undir sæti eða í hliðarhólf í farangursrými margra bíla.
- Öflugar rafgeymaklemmur sitja vel og örugglega á rafgeyminum. Aukalega þá kemur snúra með auga-tengjum sem henta á marga eldri bíla og mótorhjól sem og þar sem erfitt er að koma klemmum á pólana.
- Öryggi skiptir öllu máli. Bosch C70 tækið hættir að hlaða ef það koma upp vandamál svo sem ofhitnum, útsláttur og þess háttar. Tækið er rakavarið IP65 (ryk og skvetthelt). Tækið kemur líka í veg fyrir neistamyndun þegar verið er að setja klemmurnar á rafgeyminn eða taka þær af.
Bosch C70 hleðslutæki og vaktari
Fjölhæft hrað-hleðslutæki fyrir 12V og 24V rafgeyma
Með 10A hleðslustraumi er Bosch C70 hleðslutækið skilvirkt og mjög hraðvirkt.
Það hentar jafn vel hefðbundnum blýsýru- eða GEL-rafhlöðum sem og nýju Start/Stop AGM og EFB tækninni, það er samhæft við 12V og 24V rafgeyma.
Bosch C70 er líka sjálfvirkt og má segja að það sé snjalltæki upp á það að velja réttan hleðsluham.
- Biðhamur: Tækið skiptir sjálfkrafa í þessa stöðu ef bilun er í hleðslu eða óvirkni.
- 12V stilling: mótorhjól / bifreið 12V – hleðsla 14.4V – 10A
- 24V stilling: mjög öflug (heavy duty) 24V – álag 28.8V – 5A
- AGM stilling : vetur / AGM – hærri hleðsluspenna – 14.7V – 10A / 29.4V – 5A
- Endurnýjun: hæg endurhleðsla til að endurheimta algerlega afhlaðinn rafgeymi.
- Stuðningur / biðhamur: Tækið styður við rafeindabúnað ökutækis meðan verið er að skipta um 12V rafgeymi (setja nýjan rafgeymi í ökutækið). Þetta er gert til að missa ekki út stillingar sem vistaðar eru í búnaði ökutækis.
- Öryggi: Tækið lætur þig vita ef þú pólar tækið öfugt þ.e.a.s. setur klemmurnar öfugt á +/- póla rafgeymis.
- 4 stiga hleðslustaða gefin til kynna með gaumljósi.