Formula BL912 kísilhreinsir
Formula BL912 kísilhreinsirinn er mjög sterkt súrt hreinsiefni sem sérstaklega er ætlað til að losa kísil af hörðum yfirborðsflötum. Formula BL 912 kísilhreinsir hentar mjög vel á sundlaugastaði. Formula BL912 kísilhreinsirinn inniheldur meðal annars Fosfórsýru 1-5%.
Athugið! Þegar verið er að meðhöndla sterk hreinsiefni þá á ávallt að fylgja leiðbeiningum og notið hlífðarfatnað s.s. öryggisgleraugu (helst andlitshlíf), hanska og grímu.
Blöndun:
1 hluti Formula BL912 á móti 3 hlutum vatns (100ml af Formula BL912 á móti 300ml vatns).
Blandið upplausnina í plastfötu eða sýruþolinn úðakút.
Notkunarleiðbeiningar:
Formula BL912 á alls ekki að nota óblandað.
Bleytið yfirborð vandlega fyrir notkun, notist alls ekki á þurrt yfirborð.
Má nota á gler en gler er mismunandi og það borgar sig að prófa sig áfram með það.
Farið varlega í kringum alla málma þar sem Formula BL912 inniheldur súr leysiefni.
Formula BL912 ætti eingöngu að nota þar sem hægt er að komast í vatn.
Berið á eða úðið Formula BL912 jafnt yfir flötinn, ef borið er á lóðrétta fleti, byrjið neðst og vinnið ykkur upp eftir fletinum vætið yfirborðið sem vinna á við mjög vel með efninu (ef þörf er á þá má skrúbba yfir).
Látið efnið standa í 5-10 mínútur eða þar til lausnin hefur náð að komast í gegnum kísilinn.
Skolið mjög vel með köldu vatni.
Kannið hvort einhverjar kísilleifar sitja eftir og endurtakið ef þörf þykir. Endurtakið ferlið ef að þörf þykir.
Látið Formula BL912 ekki þorna á fletinum.
Skolið vel allan fleti og tæki sem komist hafa í snertingu við Formula BL912 vel með köldu vatni.