Bumper Structure Spray er hraðþornandi svart lakk á spreybrúsa sérstaklega gert fyrir stuðara til þess að binda sig við plastefni án þess að þurfa að nota til þess sérstaklega grunn. Efnið er fjaðrandi og hentar vel neðst á stuðara og svuntur til að verja þær.
Leiðbeiningar almennt fyrir lökkun:
Hreinsið vel það sem á að lakka og verjið umhverfið í kring svo lakk setjist ekki á þá fleti.
Hristið spreybrúsa ávallt fyrir notkun í c.a. 2-3 mínútur til að ná góðri blöndun á innihaldsefnum.
Úðið úr 20-30 cm fjarlægð.
Lakkið er snertiþurrt á 30 mínútum, eftir 2 klst er lakkið fullþurrt en það nær fullri hörku á 24 klst.