EVAPO-RUST® Rust Remover er ryðeyðandi hreinsiefni sem fjarlægir ryð án þess að þurfa að skrúbba, bursta eða slípa. EVAPO-RUST® er ekki ætandi fyrir stál og skemmir ekki brass, kopar, ál, gull, blý, títaníum, stál, pottjárn, járn, króm, lóðaða fleti, vínil, plast, gúmmí, sílikon, gler, kork eða timbur.
EVAPO-RUST® ryðeyðir má nota aftur og aftur eða þar til sjáanleg virkni er búin. Hægt er að sigta notaða efnið og setja það á brúsa til notkunar aftur.
EVAPO-RUST® hefur ekki neinn uppgefinn hillutíma (enga best fyrir dagsetningu).
EVAPO-RUST® ryðhreinsirinn:
- Er ekki ertandi fyrir augu
- Er ekki ertandi fyrir húð
- Er ekki ertandi fyrir munn
- Er ekki eldfimt
- Er ekki sýra
- Inniheldur engin leysiefni
- Brotnar niður í náttúrunni
Notkunarleiðbeiningar:
Skref 1: Undirbúið ryðlausnina
Setjið EVAPO-RUST® í ílát sem passar fyrir hlutinn sem á að ryðhreinsa. Það sem á að hreinsa þarf að vera alveg á kafi í lausninni. Best er að hafa hlutina hreina og lausa við olíu og fitu.
Skref 2: Leggið hlutina í bleyti
Sökkvið hlutnum í EVAPO-RUST® lausnina og látið liggja í henni í að minnsta kosti 30 mínútur og allt að 24 klukkustundir fyrir mikið ryð. Lausnin hefur engin áhrif á málminn sjálfan, eingöngu ryð.
Skref 3: Hreinsið / skolið málminn
Þegar málmurinn er búinn að liggja í lausninni og allt ryð farið, skolið mjög vel með vatni. ATH! það skiptir miklu máli að fylgja skrefunum svo að sem bestur árangur náist. Stundum þarf að leggja aftur í EVAPO-RUST® lausn ef það eitthvað ryð eftir.
Skref 4: Látið þorna
Látið málminn þorna vel eftir skolun. Málmurinn ætti að haldast án ryðs í allt að 2 daga. Ef þú ætlar ekki að lakka eða meðhöndla málminn strax er gott að notast við Rust-Block ryðvörnina sem ver málminn í allt að 1 ár.
Hér má sjá nokkra hluti sem hafa verið meðhöndlaðir með EVAPO-RUST®.
Hér eru skemmtileg myndbönd frá EVAPO-RUST®
Hér má sjá Edd China vinna með Evapo-Rust
Það er hægt að sjá mikið af skemmtilegum myndböndum á Youtube rás Evapo-Rust og við hvetjum áhugasama um að kíkja þangað