NovaOptimizer er náttúruafurð / náttúrulegt bætiefni sem samanstendur af sérstökum steinefnum sem skila mjög öflugum jónaskiptum.
NovaOptimizer er ætlað til notkunar í haughús, leysir upp fastan skít, mýkir og auðveldar alla vinnu við hauginn ásamt því að eyða ammóníaklykt.
Varan getur sogað í sig áburð og vatn. Vegna þessa ferlis virkar NovaOptimizer sem dempari, bæði fyrir áburð og vatn, og dregur því úr útskolun áburðar í grunnvatn. Jónaskiptin draga einnig úr loftborinni mengun á borð við lykt eða gufur sem innihalda ammoníak, en hvort tveggja getur verið til mikils ama.
Ástæða þess hve vel steinefnin virka er að neikvæðum jónum er breytt í jákvæðar. Við það binst ammoníakið í skítnum sem dregur mjög úr ammoníakgufum. Varan hefur einnig góð áhrif á áburðinn og skilar jafnari massa. NovaOptimizer er gott fyrir umhverfið og ekki síður fyrir fjárhag bóndans sem fær meira út úr áburðinum sínum.
10 kg af NovaOptimizer duga í 500m3 (rúmmetra)
Notkun:
Fjós og svínahús
- Tæmið flórinn. Bætið 20 gr. af NovaOptimizer fyrir hvern rúmmetra af skít sem reikna má með við næstu tæmingu.
- Varan verkar fram að næstu tæmingu.
- Stráið NovaOptimizer á gólfið eða blandið því við vatn og hellið því yfir gólfið í hvert skipti sem flórinn er tæmdur.
Minkahús
- Bætið 20 gr. af NovaOptimizer fyrir hvern rúmmetra af skít sem er í tanknum/þrónni.
- Munið að hræra verður vel í skít með viðbættu NovaOptimizer áður en hann er borinn á. Sé það ekki gert, næst ekki hámarksárangur.
- Mælt er með því að hrært sé í áburðinum á fimm mismunandi stöðum í tanknum til að tryggja að allt botnfall blandist vel við massann.
Ítarlegri upplýsingar má sjá í blöðungi sem er í fylgiskjölum vörunnar.