Nova Dip er sótthreinsandi spenadýfa-þykkni sem er blandað niður og notað í spreyformi eða sem ídýfu í þar til gerða spenadýfubolla eftir mjaltir. Nova Dip er sótthreinsandi spenadýfa sem fyrirbyggir útbreiðslu á júgurbólgusýklum. Fyrir utan joð sem sótthreinsandi efni inniheldur glycerin sem mýkir og hindrar þornun spenanna sem svo valda sprungum í húð.
Nova Dip Þykknið er mikið notað á Robota og mjaltakerfi.
Meðhöndlun og blöndun:
- Blöndun: 1 hlutur Nova Dip á móti 4 hlutum vatns, við hitastig upp að 30°C.
- Úðið á eða dýfið blöndunni á spenana strax eftir að mjaltabúnaður hefur verið fjarlægður þar sem spenarnir eru enn opnir eftir mjaltirnar.
- Lausnina má nota 2-3 sinnum daglega.
- Þekjið allan spenann með efninu.
- ATHUGIÐ: Notið hverja blöndu einungis einu sinni í ídýfunarbollann til að gæta fyllsta hreinlætis.
- Að notkun lokinni: Tæmið og þrífið spenadýfubolla vel eftir hverja notkun og þurrkið hann fram að næstu notkun (látið lofta um hann).
Innihald:
- Glycerin: Virkar hreinsandi og mýkjandi.
- Joð: Sótthreinsieiginleikar.
Geymið Nova Dip ávallt í upprunalegum umbúðum og við hitastig á bilinu 0°C – 30°C