Temflex 1500 Electrical tape er einangrunarlímband sem er 0,15mm þykkt, 19mm breitt og 20 metrar að lengd, það teygjanlegt, öflugt og sterkt einangrandi límband fyrir rafmagnshluti en það hentar einnig fyrir margskonar önnur verkefni. 3M Temflex er mjög slitsterkt, þolir vel núning, raka, basa, sýru og mismunandi veðurskilyrði þar með talið sólarljós. Hentar vel á tengi, liði, kapla og á eða yfir viðgerðir.
Litir í boði eru svart, blátt, brúnt, gult, gul/grænt, grátt, rautt, hvítt, appelsínugult og grænt.
- Breidd: 19 mm
- Lengd: 20 metrar
Uppfyllir kröfur IEC 60454-3-1-5 / F-PVCP / 90 og er með VDE merkingu og leyfi.