Justrite® – Sure Grip® EX Undercounter efnvöruskáparnir henta vel undir vinnuborð. Undercounter efnaskáparnir eru með 2 hurðum. Efnavöruskáparnir koma með U-Loc™ (2 lyklum), öflugri sílendra læsingu. Ef að þörf þykir er einnig er hægt að læsa aukalega með hengilás (hengilás fylgir ekki með), sjá mynd af læsingu í myndasafni.
Hægt er að fá aukahillu í Undercounter efnaskápana, nánar er hægt að sjá hvaða vörunúmer passar í hvern skáp í fylgiskjölum
Á skápunum er tveir loftunarmöguleikar sem innihalda neistavörn.
Hægt er að fá flesta Justrite efnaskápana með tvennskonar hurðarmöguleika, annarsvegar Manual sem er handvirk hurð og svo hinsvegar Self-Close eða sjálflokandi, sá búnaður sleppir hurðinni og hún lokast sjálfkrafa t.d. við eldsvoða eða hita yfir 74°C.
- Manual: hurðin opnast allt að 180° og læsingin smellur þegar hurðin er lögð aftur.
- Self-Close: hurðin er með innfelldri löm og lokast sjálfkrafa við mikinn hita eða eld þegar “Fusible Link” tengipuntkur milli hurðar og efnaskáps bráðnar við 74°C.
Sure-Grip® EX Undercounter efnaskáparnir fást í eftirfarandi útgáfum og stærðum, Manual eða Self-Close, sjá í töflunni hér að neðan.
Vörunúmer | Hurð – Lokun | Stærð í lítrum | Ytra mál (HxBxD) | Innra mál (HxBxD) | Safnþró (sump) |
---|---|---|---|---|---|
8923001 | Manual | 83L | 889 x 889 x 559mm | 695 x 806 x 476mm | 20L |
8923201 | Self-Close | 83L | 889 x 889 x 559mm | 695 x 806 x 476mm | 20L |