Uppsogssett sem inniheldur fyrstu hjálp þegar slys verður og vökvi fer niður. Uppsogssettið er svokallað “Oil only” og er bara fyrir olíur og inniheldur hvítar mottur, uppsogspulsur og uppsogskodda.
*** Hægt er að fá áfyllingu á þetta sett ***
Inniheldur:
- 1 Tunna Gul að lit --> Stærð: 72 x 55 x 55 cm
- 48 stk uppsogsmottur Premier 50 x 40 cm
- 8 uppsogspulsur Premier 7.5 cm x 120 cm
- 1 kg Drum Plug – Leak Block Putty – Efni sem tekur sig við snertingu við vætu og er notað til að loka götum og holum
- 1 stk varúðarborði (Hazard tape)
- 10 poka og bensli til að binda fyrir pokana
Uppsogsgeta H1270090
- 90 lítrar
Uppsogsmottur og uppsogspulsur eru til þess ætlaðar að sjúga í sig vökva af einhverju tagi sem niður hefur farið t.d. í slysum eða vegna bilaðra véla og búnaðar. Hægt er að fá þessar uppsogsvörur í 3 mismunandi litum sem hver og einn stendur fyrir gerð vökva sem þeir taka í sig. Hvítur er eingöngu fyrir olíuvökva, Grár er fyrir ýmsa vökva svokallaður “universal” og svo er gulur sem ætlaður er fyrir efnaslys, sýrur, basa og þess háttar vökva.
ATH! Þegar uppsogsmottur eða uppsogspulsur eru orðnar vökvafylltar er þeim fargað í heilu lagi samkvæmt reglugerðum.