3M 6035 er P2/P3 R filter sem passar á 3M hálfgrímur og heilgrímur. 6035 filterinn veitir vörn gegn ryki.
Athugið að til að ná P3 R vörn þarf að notast við heilgrímu. Filterarnir henta á 6000 / 7000 hálf- og heilgrímur frá 3M™.
Vörn gegn:
Ryki og fínum úða
Uppfyllir eftirfarandi staðla:
EN 143:2000
Ítarlegri upplýsingar má sjá í fylgiskjölum
Notkun – Hvenær á að skipta um filter?
Endingartíminn á filternum er merktur inn á pakkann, ekki er ráðlagt að nota filtera sem komnir eru yfir á tíma þó svo þeir líti út fyrir að vera í lagi. Varðandi notkunartíma sem fellur innan þeirrar dagsetningar þá er erfitt að segja til um það fyrirfram. Þetta veltur allt á notkun og í hversu miklum óhreinindum, raka og ryki verið er að vinna í. Til viðmiðunar er gott að vera með eftirfarandi í huga:
Rykfilterar (agnsíur): Endurnýið rykfilterana er þegar öndun inn í gegnum grímuna fer að þyngjast.
Kolafilterar (gas- og gufusíur): Endurnýið kolafilterana þegar minnsta lykt eða bragð er farið að gera vart við sig inni í grímunni.
Filtera ber að geyma í lokuðum umbúðum, s.s. lásapoka eða vel þéttu boxi.