3M Peltor WS-CUSH er þráðlaus Bluetooth® samskiptamáti fyrir Peltor X heyrnarhlífarnar. Heyrnartólið smellist í vinstri skelina í staðinn fyrir annan púðann/þéttihringinn á Peltor X heyrnarhlífunum. WS-CUSH heyrnartólin eru hönnuð fyrir samskipti í hávaðasömu umhverfi. Míkrafónninn útilokar umhverfishávaða (Noise Cancelling) á meðan samskiptum stendur og þú getur streymt útvarpi eða Spotify. Öflugur samskiptabúnaður sem er gerður fyrir ítrustu aðstæður, regn, svita, ryk og hitabreytingar. Einföld og þægileg lausn sem passar í allar týpur af Peltor X heyrnarhlífunum.
**Athugið að þetta er aukahlutur í Peltor X heyrnarhlífarnar, þær fylgja ekki með í pakkanum.
Upplýsingar
- Endurhlaðanlegt með USB snúru
- Bluetooth® tengimöguleiki
- Hleðslutími: 3 klst
- Endingartími í tali: 8 klst
- Endingartími á bið (standby): 250 klst
- Varnarflokkur: IP54
Hér fyrir neðan eru myndbönd af heyrnartólunum í notkun sem og leiðbeiningar um notkun þess og samsetningu: