Peltor WS Alert XPI APP – ACK útgáfa, heyrnarhlíf með Bluetooth® Multipoint tækni, ACK útgáfan inniheldur svokallað hleðslusett aukalega sem er: hleðslurafhlöður, hleðslutæki, hleðslusnúru með USB tengi, auka púðasett og vindhlíf á hljóðnema (1 mtr). Einnig fylgja 2 sett af skeljum utan á hlífina annað er blátt og hitt er bleikt. Peltor WS Alert XPI heyrnarhlífin er með míkrafón sem að útilokar umhverfishljóð, heyrnarhlífina er hægt að tengja við “APP” eða réttara sagt smáforrit í síma til að auðvelda uppsetningu, stillingar o.fl.. Peltor WS Alert XPI heyrnarhlífin tengist sem áður við 2 Bluetooth tæki svo sem tónlistarspilara (MP3), farsíma og talstöðvar. Peltor WS Alert XPI heyrnarhlífin verndar þig gegn umhverfishávaða en á sama tíma auðveldar þér að hafa samskipti í hávaðasömu umhverfi þar sem míkrafónninn á heyrnarhlífinni útilokar hávaða í umhverfinu. WS Alert XPI er með innbyggt FM útvarp og stafræna stöðvaleit. Helstu eiginleikar
- Fást á höfuðspöng sem og fyrir 3M Peltor öryggishjálma
- Hægt að stilla umhverfishljóðnema þ.e.a.s. hægt að hækka eða lækka í umhverfishljóðum
- Tveir litir af skeljum koma með í pakkanum bláar og bleikar
- Hlífarnar eru með tvískiptar skeljar sem minnkar möguleika á því að sviti komist í rafbúnað og tæri hann
- Bluetooth® MultiPoint tækni sem leyfir tengingu við 2 tæki í einu
- Stillingar eru talsettar þannig að hlífin endurtekur allt sem þú ert að gera
- Innbyggt FM útvarp sem takmarkar spilun (hávaða) við 82 dB
- Stafræn stöðvaleit
- Möguleiki á að vista 4 útvarpsstöðvar
- Veitir vörn fyrir hávaða upp að 94-105 db
- Lætur vita þegar rafhlöður eru orðnar lágar í hleðslu
- Heyrnarhlífin slekkur á sér eftir 4 klst til að spara rafhlöðu
- Hægt er að hlaða heyrnarhlífina með NiMH rafhlöðum
- Hægt að skipta út púðum á hlífinni (HY82)
Hljóðdeyfing:
- Höfuðspöng: SNR=30 dB H=35 dB M=27 dB L=18 dB
- Fyrir öryggishjálma: SNR=30 dB H=34 dB M=27 dB L=18 dB
Aukahluti sem og varahluti má sjá í tæknilýsingu sem er í fylgiskjölum. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd þar sem farið er yfir það hvað er í pakkanum ásamt stillingum í smáforritinu o.fl..