Peltor HY54 er púðasett sem inniheldur þéttihringina sem og svampinn sem leggst inn í skelina, HY54 passar á Peltor Optime III heyrnarhlífarnar. Púðarnir á heyrnarhlífunum slitna og jafnvel springa með tímanum og valda þá óþægindum fyrir notanda heyrnarhlífanna en einnig safnast óhreinindi í svampinn inni í hlífinni.
HY54 settið inniheldur: Ytri þéttihringi og hljóðdeyfandi púða sem hægt er að skipta um á mjög fljótlegan og þægilegan máta.