Öryggishjálmur 3M G3000 eru vandaðir og góðir hjálmar, þeir eru með stilliskrúfu á hnakkabandinu sem gerir það einstaklega þægilegt að þrengja þá að höfðinu, það er loftun í toppnum og þeir hleypa hitanum út.
*** Athugið að ekki eru allir litir til á lager, svartur og Hi-Viz (sýnileika) eru báðir sérpöntunar vara.
Hægt er að fá ýmiskonar aukabúnað á hjálmana svo sem hökuól, innfelld öryggisgleraugu, andlitshlífar, andlitsnet og heyrnarhlífar svo eitthvað sé nefnt.
3M G3000 öryggishjálmurinn er með flatan skjöld framanvert sem hentar mjög vel fyrir merkingar.
3M öryggishjálmarnir eru með svokallað Uvicator™ sem er lítil rauð skífa aftanvert á hjálminum og segir til um ástand hans gangvart útfjóublárri geislun (UV geislun), þegar þessi skífa er orðin hvít skal skipta strax um öryggishjálm.
Athugið! þegar öryggishjálmar fá á sig högg af einhverju tagi rýrir það öryggisgildi hjálmsins og þá er best að skipta honum út fyrir nýjan öryggishjálm.
3M G2000 öryggishjálmarnir uppfylla EN 397:2012+A1:2012
Ítarlegri upplýsingar í fylgiskjölum