3M Peltor H505B er heyrnarhlíf sem ætluð er til notkunar undir rafsuðuhjálma. H505B heyrnarhlífin er mjög þunn og hún kemur einungis með hnakkabandi þ.e.a.s. spöngin liggur aftur fyrir hnakkann. Peltor H505B heyrnarhlífarnar henta sérstaklega vel til notkunar undir 3M Speedglas 9100 rafsuðuhjálminn.
Upplýsingar
SNR=24dB
H=29dB
M=20dB
L=13dB
Uppfyllir eða fer fram úr eftirfarandi stöðlum
CE EN352-1;2002
Ítarlegri upplýsingar má sjá í fylgiskjölum
*** Hvað er SNR ?
SNR er einnar tölu stigakerfi sem að er staðlað samkvæmt alþjþoðlega staðlinum ISO 4869 og eru mældar í dB (desibilum). SNR tölur eru notaðar sem viðmiðun fyrir samanburð á mögulegri deyfingu á hávaða. Prófanir eru gerðar af viðurkendum rannsóknarstofum sem að eru óháðar framleiðendum. Sem dæmi má nefna: Ef að hávaði er 110 dB og þú ert með heyrnarhlífar sem gefnar eru upp 33 SNR þá er hávaðinn 77 dB, athugið að þetta dæmi er til að gefa grófa hugmynd af því hvernig SNR virkar.