2138 er filter / grisja sem uppfyllir P3R staðal og passa á 3M hálfgrímur og heilgrímur. 2138 filterarnir koma 10 pör saman í kassa.
Notkun – Hvenær á að skipta um filter?
Endingartíminn á filternum er merktur inn á pakkann, ekki er ráðlagt að nota filtera sem komnir eru yfir á tíma þó svo þeir líti út fyrir að vera í lagi. Varðandi notkunartíma sem fellur innan þeirrar dagsetningar þá er erfitt að segja til um það fyrirfram. Þetta veltur allt á notkun og í hversu miklum óhreinindum, raka og ryki verið er að vinna í. Til viðmiðunar er gott að vera með eftirfarandi í huga:
Rykfilterar (agnsíur): Endurnýið rykfilterana er þegar öndun inn í gegnum grímuna fer að þyngjast.
Kolafilterar (gas- og gufusíur): Endurnýið kolafilterana þegar minnsta lykt eða bragð er farið að gera vart við sig inni í grímunni.
Filtera ber að geyma í lokuðum umbúðum, s.s. lásapoka eða vel þéttu boxi.