Loctite SF 7850 er öflugur nátturlegur handhreinsir frá Loctite sem hægt er að nota með og án vatns, inniheldur græðandi húðvarnarefni.Hreinsieiginleikar efnisins koma úr sítrus ávöxtum nánar tiltekið appelsínum, efnið ehfur þar af leiðandi sítruskeim af appelsínum en hefur fyrir utan það engin viðbætt ilmefni og engin skaðleg leysiefni. Hreinsar meðal annars: olíu, smurfeiti, málningu, lakk, lím, epoxý, blek og margt fleira.
Loctite SF 7850 handhreinsirinn er mildur og inniheldur meðal annars aloe vera, lanolin og jojoba oil til að vernda og viðhalda húðina.
Öryggisblað
- ATH! Loctite SF 7850 handþvottakremið er flokkað sem snyrtivara og því er ekki í boði að nálgast öryggisblað SDS/MSDS fyrir þessa vöru.