3M Dual Lock SJ3542 er endurlosanleg riflása-festing sem getur vel komið í staðinn fyrir skrúfaðar festingar. Dual Lock festingin (franskur rennilás) er með hundruðir sveppalaga tinda sem smella saman þegar hann er settur saman. Dual Lock riflásinn er þannig gerður að hann festist við sjálfan sig og því þarf ekki tvær týpur af riflásum (Hook og Loop) eins og er í þessum týpíska franska rennilás.
3M Dual Lock SJ3542 X riflásinn er sá sami og SJ3542 en X útgáfan kemur forskorinn í 25 x 25mm kubba sem hentar mjög víða í alls konar upphengivinnu og fleira.
Dual Lock er Gríðarlegt álagsþol festingarinnar og sterk líming gerir efnið langlíft og öruggt í notkun. Dual Lock fæst í 2 styrkleikum: Þunnum með 50 opnunum í léttari festingar, og sterkari sem þolir 1000 opnanir og með gríðarlegt burðarþol.
Upplýsingar
- Breidd: 25 mm
- Lengd 2 x 5 metrar
- Forskorinn 25 x 25mm kubba