LX-1328 er handvirk “Lever” tunnudæla úr ryð- og tæringarvörðu efni. Hentar til þess að dæla mildum upp í miðlungssterk efnum sem og vatnsblönduðum efnavörum s.s. sápum og AdBlue vökva. Ítarlegri upplýsingar um efnaþol má sjá í lista í viðhengi.
Hægt er að setja slöngu upp á stútinn til að auðvelda áfyllingu á brúsa o.fl..
Upplýsingar
Passar á tunnur frá 57 ltr upp í 210 ltr
Stillanlegt flæði á vökva lítið, miðlungs eða mikið
Dæling: 500ml í hverri pumpu eða 3.8 L á 8 slögum
50mm krans sem skrúfast á tunnulokið
Lekavarinn stútur
Sveigður krani sem hægt er að setja slöngu upp á
Allir hlutir sem snerta vökva eru úr: Polypropylene, ryðfrítt stál (SS201), Viton®