Kränzle HD 10/122 TS er nett og lítil háþrýstidæla. Dælan er á lítilli grind sem er auðvelt að halda á og færa til. Það er ekki tromla eða upphengi fyrir rafmagnssnúru. Kraftstútur með ryðfríu stálröri. Stillanlegur stútur (Vario-stútur) með ryðfríu stálröri og stiglausri stillingu á geisla. Einnig stiglaus stilling frá flötum geisla yfir í hringlaga geisla og frá háþrýstum í lágþrýstan geisla. Þolir allt að 60°C heitt vatn.
ATH! Dælan þarf að vera í liggjandi stöðu þegar hún er í notkun.
Tæknilegar upplýsingar
- Kränzle númer: 600080
- Vinnuþrýstingur: 30-120 bar / 3-13 MPa (stiglaus stilling)
- Hámarksvinnuþrýstingur: 135bör / 13,5 MPa
- Vatnsnotkun: 10L mín. / 600L klst
- Snúningshraði mótors – 2.800 rpm.
- Tenging V | ~ | Hz | A:> 230V | 1 fasa | 50Hz | 12A
- Lengd slöngu: 15m
- Lengd rafmagnssnúru: 5m
- Stærð LxBxH: 440 x 200 x 330mm
- Þyngd: 23 kg
Fylgihlutir
- Stálofin háþrýstislanga: 10 (DN6) | V.nr.: 43416
- Rofabyssa með öryggi: Starlet 4 | V.nr.: 12525
- Kraftstútur með ryðfríu stálröri: 042 | V.nr.: 12433-042
- Stútur með breytilegri stillingu og ryðfríu stálröri: 042 | V.nr.: 12438-042



















