NOCO Boost X GBX75 starttækið byggir á algerlega nýrri tækni, tækið er uppgefið 2500A og veitir öflugra start í hvert skipti. GBX75 er handhægt starttæki fyrir 12V rafgeyma, hentar fyrir bíla, bifhjól, vinnuvélar, trukka og báta. Fyrir bensínvélar allt að 8,5 L eða díselvélar allt að 6,5 L..
NOCO Boost X GBX75 er með USB og USB-C tengjum og þú getur hlaðið hratt og vel nánast öll tæki s.s. snjallsíma, spjaldtölvur, heyrnartól o.fl. eða til þess að knýja 12V tæki s.s. dekkjapumpu og Power inverter o.fl.. Tækið má einnig nota sem ljósgjafa, það inniheldur LED ljós sem er 400 lúmen með mismunandi stillingum.
Endurhleðslutími ýmissa tækja með Genius Boost X GBX75 starttækinu
- Miðað við 2,5W hleðslu: 40 klukkustundir
- Miðað við 5W hleðslu: 20 klukkustundir
- Miðað við 10W hleðslu: 10 klukkustundir
Rakvörn GBX75 (með öll port/tengi lokuð): IP65
Hér fyrir neðan má sjá myndbönd tengt notkun á NOCO GBX75 starttækinu
Hvernig á að starta með NOCO GBX75
Hvernig á að hlaða NOCO GBX75
Handvirk yfirkeyrsla NOCO GBX75
Hvernig á að hlaða síma með NOCO GBX75