Hálkuvarnir

Við bjóðum úrval af límdum hálkuvarnarlausnum sem og hálkuborðum frá Heskins. Við erum einnig með tveggja þátta hálkuvarnarlausnir frá 3M og Loctite

SafetyGrip hálkuborðarnir frá Heskins innihalda korn í mismunandi grófleika allt frá litlum grófleika, miðlungs grófleika og yfir í mjög grófa. Breiddirnar eru 25mm, 50mm, 75mm, 100mm og 150mm, rúllurnar eru 18,3 metrar að lengd. Heskins býður einnig upp á hálkuborða í kassa- og hringlaga formum.

Einnig eru til hálkuborðar sem eru með gúmmíkenndu yfirborði sem þægilegt er að labba á sem og hálkuborðar sem henta í votrými s.s. eldhús, þvottahús og baðrými og sturtur.

Úrvalið frá Heskins er mjög mikið og þeir bjóða einnig margskonar sérlausnir sem eru sérpöntunarvara sem tekur 5 til 10 virka daga að fá til landsins.

Skoða hálkuborða
Engin vara fannst sem passar við valið - Sendu okkur fyrirspurn ef þú finnur ekki það sem þú leitar að.