Nevastane Antifreeze er matvælavottaður frostlögur sem byggður er á mono propylene glycol og öflugri tæringarvörn, hann er glærleitur að lit, örlítið skýjður. Nevastane MPG er mikið notaður í matvælaiðnaði á kælikerfi s.s. drykkjariðnaði, ísgerð sem og matvælavinnslum sem vinna með kæld matvæli.
Til að viðhalda fullkomnum eiginleikum Nevastane MPG þarf blöndunin að vera að lágmarki 30%.
ATHUGIÐ! Þegar verið er að setja nýjan vökva á eldri kerfi er best að skola kerfið bæði til að ná út gamla vökvanum en einnig til að hreinsa út óhreinindi sem kunna að vera í kerfinu. Nevastane MPG sem og aðrar gerðir af lagnalegi á „ALLTAF“ að blanda áður en honum er dælt inn á lagnakerfi til að fá út fullkomna efnafræðilega blöndu.
Kostir Nevastane MPG:
- Nevastane MPG má blanda saman við aðra frostlegi sem byggja á monopropylene glycol eða monoethylene glycol.
- Langlífur frostlögur með öflugri tæringarvörn
- Langur líftími Nevastane MPG gerir það að verkum að sjaldnar þarf að skipta um lagnalög og því lækkar það rekstararkostnað.
Uppfyllir eða fer fram úr eftirfarandi stöðlum:
- NSF HT1 skráning númer 139291
- FDA, 21 CFR, 178.3570
Ítarlegri upplýsingar má sjá í fylgiskjölum