Flash Nuvea eru létt (23 gr.) og þægileg, þau eru bogadregin og liggja vel að andlitinu ásamt því að veita góða hliðarvörn líka. Flash Nueva öryggisgleraugun eru úr polycarbonate (pc) plastefni, þau eru höggþolin og henta vel við notkun á ýmsum slípiverkfærum þar sem þau veita vernd gegn aðskotahlutum á miklum hraða.
Við þrif á öryggisgleraugum úr polycarbonate (pc): Notið volgt vatn og sápu sem er hlutlaus (pH), notið alls ekki kornasápu eða sterk leysiefni, það eyðileggur linsurnar. Geymið öryggisgleraugu ávallt á þurrum og hreinum stað s.s. í gleraugnhulstri eða gleraugnapoka til þess að hlífa þeim við álagi og nuddi.
Staðlar: EN 166 / EN 170 / EN 172
Flash Nuvea öryggisgleraugun eru seld í stykkjatali, það eru 12 stk í boxi og 25 box í kassa (300 stk).