LWS – Liquid Waste Solidifier
LWS er þurrkandi uppsogsefni sem inniheldur klór. LWS var sérstaklega hannað til þess að sjúga í sig allskonar vökva. Hentar til að sjúga upp t.d. drykki eða líkamsvessa sem farið hafa niður í teppi, mottur, bíla, sæti o.fl.. Þessi sérstaka efnablanda sýgur í sig mjög hratt vökva og gerir þá að hlaupkenndu efni sem auðvelt er að sópa upp.
LWS inniheldur klór sem að sótthreinsar flötinn sem það lá á t.d. þar sem vökvar og líkamsvessar hafa farið niður og þörf er á sótthreinsun.
LWS – Liquid Waste Solidifier sýgur í sig 40 falda þyngd sína, auðveld og hröð leið til að forða slysum t.d. í leigubílum, rútum, lögreglu og sjúkrabílum svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeiningar
- Stráið LWS yfir vökvann, hlutföllin eru mismunandi eftir hvers kyns vökvinn er
- Látið standa í 4-5 mínútur (ef að þetta situr t.d. í grófu teppi er gott að hreyfa við LWS efninu svo það komist vel milli þráðanna)
- Ef að það hefur ekki náð öllum vökvanum í sig, endurtakið ferlið
- LWS efnið verður gelkennt þegar það sýgur upp vövkann
- Sópið saman gelkennda efninu eða ryksugið (með ryksugu sem þolir raka)
Ítarlegri upplýsingar í fylgiskjölum