Dynatrans ACX 10W TO-4 er afkastamikil TO-4 vökva- og aflflutningsolía fyrir þungavinnuvélar. Hún er hönnuð fyrir kerfi þar sem gerðar eru miklar kröfur til slitvarnar, núningseiginleika og stöðugrar virkni við mikið álag.
Helstu eiginleikar
- Sterk slitvörn fyrir dælur, gíra og drifbúnað
- Stöðug frammistaða í Powershift-gírkössum og vökvakerfum
- Hentar krefjandi rekstri í jarðvinnu, námuvinnslu og byggingariðnaði
- Góð vörn gegn tæringu og útfellingum
Notkun
SAE 10W er einkum ætlað fyrir glussakerfi og annan búnað þar sem TO-4 vökvaolía af þessari seigju er áskilin.
Staðlar og samþykktir
| Alþjóðlegir staðlar | API GL-4; API CF |
|---|---|
| Kröfur framleiðenda | Caterpillar TO-4; CAT HYDO Advanced; Komatsu Micro Clutch |
| Samþykktir | Allison C-4; ZF TE-ML 03C |
| Hentar fyrir | Dana; Eaton Fuller; Hitachi; JCB; Komatsu; Rockwell |
Tæknilegar upplýsingar
| Framleiðandi | TotalEnergies |
|---|---|
| Magn | 20L, 208L |
| Seigjuflokkur | SAE 10W |
Fylgið ávallt smur- og viðhaldsleiðbeiningum framleiðanda búnaðarins við val á olíu og seigju.





