Viðurkenning CreditInfo
Framúrskarandi fyrirtæki
Kemi ehf hefur hlotið viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“ hjá CreditInfo síðan 2011.
Hvað liggur að baki
Einungis 2% fyrirtækja á Íslandi komast á lista CreditInfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki og því erum við afar stolt að hafa náð þessum árangri sem er samþætting á góðum og metnaðarfullum hópi starfsfólks og sterkrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Í 13 ár hefur CreditInfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn.
Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.

