Oil Eater Overnight Rust Soak 946ml
Oil Eater Overnight Rust Soak er ryðeyðandi lausn, þykkni (óblandað efni) sem ætlað er til blöndunar á móti vatni. Oil Eater “Rust‑Soak“ tæknin leysir ryð niður að beru stáli án þess að eyðileggja eða skemma málm. Hentar sérstaklega vel fyrir verkfæri, bíla‑, sjávartól, forngripi, eldunarfatnað og margt annað. Efnið er auðvelt í notkun, þú setur efnið í ílát, leggur hlutinn sem á að ryðhreinsa í bleyti í Rust Soak lausninni og lætur standa í 12 til 24 klukkustundir. Eftir það á að vera nóg að skola með vatni, ekki á að vera þörf á að skrúbba, slípa eða nudda hlutinn. Í sumum tilfellum þarf að leggja aftur í bleytu. Gott er að vera með lok á ílátinu til að minnka uppgufun á efninu.
Fylgiskjöl
Öryggisblað
Vörulýsing

Umhverfisvænt: Oil Eater Overnight Rust Soak er vatnsblandanlegt, umhverfisvænt og brotnar niður í náttúrunni. Inniheldur ekki sýrur og frá efninu koma engar gufur eða sterk lykt.
Blöndun:
- Hefðbundin létt ryðhreinsun: 1 hluti af Rust Soak á móti 3 hlutum af vatni
- Erfið og mikil ryðhreinsun: Notið óblandað
Í efninu eru ryðvarnarefni en best er að meðhöndla ryðhreinsaða hlutinn sem fyrst eftir hreinsun.
ATHUGIÐ: Prófið efnið áður en notkun fer fram. Overnight Rust Remover er hannað til að fjarlægja ryð niður í beran málm. Lakkaðir og húðaðir hlutir, sérstaklega þeir sem eru með sanseringu geta aflitast við notkun á efninu.
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Oil EaterSkoða allt →

Oil Eater® Cleaner & Degreaser er gríðarlega öflugt vatnsblandanlegt og fjölnota hreinsiefni. Leysir á áhrifaríkan hátt upp fitu,…

Oil Eater Graffiti & Paint Scuffs Remover er öflugur hreinsir til að fjarlægja málningarbletti og veggjakrot. Öflugur og…

Oil Eater Multi-Surface Cleaner er fjölnota heimilishreinsir með sítrusilm. Öflugur og lífbrjótanlegur hreinsir sem hentar til daglegrar notkunar…

Oil Eater Rapid Clean er laust uppsogsefni úr möluðum maískólfum fyrir samhæfa olíu- og vatnsbundna vökva.

Oil Eater Overnight Drain & Tank Treatment er vistvænt hreinsiefni sem inniheldur örverur sem vinna á fitu, olíu…

Oil Eater CLEAR Cleaner & Degreaser er olíuhreinsiefni sem inniheldur engin VOC ( Rokgjörn lífræn efnasambönd) og brotnar…