Novadan

Nova X-Dry undirburður í gripahús

Verð
3.911 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Nova X-Dry er hreinsiduft / undirburður til notkunar í gripahúsum fyrir allan búfénað s.s. nautgripi, svín, sauðfé, hesta, minka, og fiðurfé. Nova X-Dry er auðvelt í notkun og gríðarlega mikla rakadrægni eða allt að 200% af nettóþyngd, Nova X-Dry dregur einnig úr fjölgun baktería og gerla úr umhverfi allra dýra.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Upplýsingar
VörunúmerVeldu magn Flokkur Stikkorð, , Vörumerki

Vörulýsing

Nova X-Dry er hreinsiduft / undirburður til notkunar í gripahúsum fyrir allan búfénað s.s. nautgripi, svín, sauðfé, hesta, minka, og fiðurfé. Nova X-Dry er auðvelt í notkun og gríðarlega mikla rakadrægni eða allt að 200% af nettóþyngd, Nova X-Dry dregur einnig úr fjölgun baktería og gerla úr umhverfi allra dýra.

Skömmtun/notkun á Nova X-Dry er 50 grömm pr. m², í 1-4 skipti á viku, allt eftir stærð og gerð gripahúsa. Notið 4 sinnum á viku í byrjun.

Kostir Nova X-Dry

• Hefur mikla ísogsgetu eða allt að 200% af nettóþyngd.
• Skapar dýrum þurrt umhverfi, og efnasamsetning og virkni vörunnar draga úr sýkingarhættu.
• Inniheldur líffræðilega virk efnasambönd sem spilla vaxtarskilyrðum gerla í gripahúsum.
• Er nánast hlutlaust (Ph er um 7,8) og er því ekki skaðlegt fyrir húð, liði, júgur eða aðra líkamshluta.
• Dregur úr hálku á gólfi.
• Má dreifa í úrgang frá búpeningi án vandamála, varan inniheldur engin efni sem eru skaðleg umhverfinu. – Varan er meðal annars framleidd úr lífmassa.
• Bætir andrúmsloft í gripahúsum og eyðir ammóníaksgufum.
• Myndar ekki köggla við venjulega geymslu.
• Dregur úr tímgunarmöguleikum flugna og annarra skordýra.
• Má nota við þurrhreinsun hófa.

Notkunarsvið

Hestar

• Allsstaðar í hesthúsum
• Gætið að drykkjarkörum

Nautgripir

• Í bása og alla aðra íverustaði gripanna
• Gætið þess að dreifa undir júgur.
• Allsstaðar á íverusvæðum kálfa

Sauðfé og geitur

• Í stíum og sérstaklega umhverfis drykkjarkör

Svín

• Í stíur.
• Í stíur með grísum.
• Á garða og aðra fóðrunarstaði

Fiðurfé

• Öll gólf.
• Umhverfis drykkjarkör
• Í hreiður og búr

Minkar

• Í búr minkanna.
• Í búr til að tryggja þurrt umhverfi

Viðbótar upplýsingar

Þyngd Á ekki við
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Novadan
Skoða allt →
Oxidan Special 150 20L
Oxidan Special 150 20L

Novadan Oxidan Special 150 er breiðvirkt, hraðvirkt sótthreinsiefni með 15% perediksýru fyrir faglega notkun. Virkar við lágan styrk…

Vnr: 55780
Sjá nánar