MouseStop

Músakítti – MouseStop Original

Vörunúmer mso0100
Verð
2.564 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

MouseStop® músakítti er þéttiefni sem heldur músum og rottum úti. Þú fyllir í rifur, göt og lagnaleiðir með kíttisprautu. Yfirborðið harðnar en kjarninn helst mjúkur og seigur, svo nagdýr eiga erfitt með að naga sig í gegn. Kíttið inniheldur hvorki eitur né sæfiefni og er vatnshelt strax, innandyra sem utan.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmermso0100 Strikamerki8719189275001 Flokkur Stikkorð, , Vörumerki

Vörulýsing

MouseStop® músakítti er þéttiefni sem kemur í veg fyrir að mýs, rottur og önnur meindýr komist inn um rifur, göt og meðfram lögnum. Það er borið á eins og venjulegt kítti. Yfirborðið harðnar en kjarninn helst mjúkur og seigur, svo nagdýr sem naga sig inn fyrir ytra lagið eiga erfitt með að komast lengra. MouseStop® er forvörn og hefur verið notað af meindýraeyðum víða um heim frá árinu 1990.

Helstu eiginleikar

  • Inniheldur hvorki eitur né sæfiefni.
  • Vatnshelt strax og hentar bæði innandyra og utan.
  • Vörnin virkar um leið og búið er að bera kíttið á.
  • Samsetning: jurtaolíur, fylliefni og pólýstýrenkúlur.
  • Notað meðal annars í matvælaiðnaði, bakaríum, eldhúsum og dreifingarmiðstöðvum þar sem kröfur um hreinlæti eru miklar.

Notkunarsvið

  • Rifur og samskeyti í klæðningu og hleðslu.
  • Samskeyti og þenslufúgur.
  • Lagnagöt og stokkar úr stáli, steypujárni og PVC.
  • Sigsprungur.
  • Tengingar milli hleðslu og frárennslislagna.

Notkun

  1. Flöturinn þarf að vera þurr og hreinn. Fjarlægið laust efni.
  2. Kíttið hentar í op og rifur sem eru að minnsta kosti 5 mm breið. Sprautið því í með kíttisprautu og gætið þess að lagið sé að minnsta kosti 10 mm djúpt.
  3. Jafnið með spaða.
  4. Vörnin virkar strax.

Þrífið hendur og áhöld með þurrum klút eftir notkun og notið white spirit ef þarf.

Gott að vita

  • Yfirborðið er þurrt eftir 48 klukkustundir við 20 °C og þá má mála yfir það.
  • Nauðsynleg dýpt lagsins getur verið breytileg eftir aðstæðum.
  • Geymist þar sem frost nær ekki til.

Varúð

  • Geymist þar sem börn ná ekki til.
  • Forðist snertingu við augu og munn. Ekki ætlað til neyslu.
  • Berið ekki á nálægt hitagjöfum.
  • Lokið aldrei loftunaropum, til dæmis fyrir gastæki, miðstöð eða ísskáp í ferðavögnum og húsbílum.

Op meðfram röri í gegnum steinvegg áður en það er þétt

MouseStop músakítti sprautað meðfram röri með kíttisprautu

MouseStop músakítti jafnað meðfram röri með spaða

Rör í steinvegg þétt með MouseStop músakítti

Rifa milli klæðningar og hleðslu áður en hún er þétt

MouseStop músakítti sprautað í rifu við klæðningu

MouseStop músakítti jafnað í rifu með spaða

Rifa við klæðningu þétt með MouseStop músakítti

Í myndbandinu hér fyrir neðan sérðu hvernig MouseStop® músakítti er borið á.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,40 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].