MouseStop® músakíttið er vistvæn lausn til að halda bæði nagdýrum sem og skordýrum frá því að komast inn um rifur, göt og meðfram lögnum inn í hús. MouseStop® er ætlað sem forvörn og það er notað eins og um kítti væri að ræða. Þú þéttir meðfram rörum, rifum og götum. Efnið er þeim eiginleikum gætt að ytra byrði þess harðnar en það er alltaf mjúkt að innan. Mýs og rottur stoppa alltaf þegar þau komast inn fyrir ytra byrðið, þar er ekki hægt að naga meira enda efnið mjög seigt undir tönn.
MouseStop® er vistvæn lausn til að halda bæði nagdýrum frá því að komast inn um rifur, göt og meðfram lögnum inn í hús.
Notkun
- Hægt að nota fyrir allt að 5mm rifur eða göt. Notið MouseStop túpuna í kíttisprautugrind og passið að það sé allt að 10mm dýpt til að fylla í.
- Jafnið út með litlum spaða (spartlspaða).
- Verður strax vatnshellt og tilbúið. Tekur sig að fullu á 48 klukkustundum.
- Þrífið hendur og áhöld með þurrum klút, notið white spirit ef þörf þykir.
Mýs og rottur hafa þá tilhneigingu frá náttúrunnar hendi að naga efni svo sem timbur, plast og einangrunarkápur utan um víra og slíkt í leit að æti og skjóli. Í ljósi þess er nauðsynlegt að takmarka aðgang þeirra að húsakynnum með forvörn eins og MouseStop®. MouseStop® hefur verið á markaði síðan 1990 og hefur sannað sig vel síðan þá.
Hér fyrir neðan má sjá myndband um það hvernig MouseStop nagdýrakíttið er notað til að þéttinga.




































