Stýrisvökvi Pyroil fyrir GM, Ford, Chrysler
Pyroil power steering fluid er stýrisvökvi /glussi sem er sérstaklega ætlaður á vökvastýri. Það eru margir kostir við að nota Pyroil s.s.: freyðir ekki, stíflar ekki, viðheldur mýkt, kemur í veg fyrir leka sem og ískur undir álagi. Pyroil er blanda úr hágæða grunnolíum með sérvöldum bætiefnum til að stuðla að lengri líftíma vökvastýrisdælunnar.
Fylgiskjöl1 skjal
Tæknilýsing
Vörulýsing
Pyroil power steering fluid er stýrisvökvi /glussi sem er sérstaklega ætlaður á vökvastýri. Það eru margir kostir við að nota Pyroil s.s.: freyðir ekki, stíflar ekki, viðheldur mýkt, kemur í veg fyrir leka sem og ískur undir álagi. Pyroil er blanda úr hágæða grunnolíum með sérvöldum bætiefnum til að stuðla að lengri líftíma vökvastýrisdælunnar.
Kostir Pyroil Power Steering Fluid:
- Uppfyllir þarfir framleiðenda “OEM”
- Viðheldur mýkt O-hringja og pakkninga
- Kemur í veg fyrir leka
- Minnkar ískur undir álagi
- Kemur í veg fyrir tæringu og slit
- Freyðir ekki né stíflar
- Hentar fyrir allt árið
- ATH! –> Hentar ekki til notkunar á vökvastýri Honda bifreiða
HVERNIG Á AÐ NOTA:
Athugaðu stöðuna á vökvastýrisvökvanum allavega einu sinni á ári, helst einu sinni í mánuði til að uppfylla ákvæði framleiðenda. Vökvann má skoða hvort sem hann er heitur eða kaldur, betra er þó að athuga hann þegar hann er heitur. Ef það er lítið á forðabúrinu, skoðaðu handbók bílsins til að fá uppgefna staðla stýrisvökvans sem á að nota. Fylltu á forðabúrið en varist það að yfirfylla það.
Hvernig virkar vökvastýrisvökvi?
Í einföldu máli: Vökvastýri er í raun glussakerfi sem gerir þér kleift að beygja á bílnum með lágmarks átökum. Vökvastýrisvökvi og sérstaklega réttur vökvi margfaldar kraftinn sem þú notar við að snúa stýrinu sjálfu og færir það yfir á stýrisbúnaðinn sem snýr þá hjólum bílsins.
Hversu oft ætti ég að skoða vökvastýrisvökvann á bílnum?
Samkvæmt forskrift framleiðenda þá er mikilvægt að athuga stöðuna á forðabúrinu allavega einu sinni í mánuði. Mæla magnið á forðabúrinu, skoða hvort að vökvinn er tær. Ef að magnið lækkar mikið milli skoðanna er mjög líklega leki
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Magn |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].








