NýttHeskins

Hálkuborði mótanlegur svartur

Vörunúmer H3406N
Verð frá
Verð frá 7.450 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Svartur, mótanlegur hálkuborði frá Heskins með mjúku álburðarlagi og grófu áloxíðyfirborði. Mótast ofan í tárustál og riffluð stálþrep. Rúllulengd 18,3 m, breiddir 25 til 150 mm.

Fylgiskjöl3 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða

Vörulýsing

Heskins Conformable Safety-Grip H3406N er svartur, sjálflímandi hálkuborði sem mótast eftir riffluðum málmflötum — tárustáli, þrepum, göngupöllum og aðkomupöllum. Gróft áloxíðyfirborðið gefur mikið grip undir skóm, líka í bleytu.

Burðarlagið er mjúk álþynna en ekki plast. Álið teygist ekki og hefur enga fjöðrun, svo borðinn er sleginn niður í mynstur undirlagsins og heldur þeirri lögun. Þannig dregur hann úr hættu á að hálkuvörnin lyftist upp úr rifflum og dældum, sem er algengi gallinn þegar venjulegur hálkuborði er lagður á tárustál.

Undirlagið þarf að vera hreint, þurrt og fitulaust við ásetningu. Heskins mælir með ásetningu við 10 °C eða hærra hitastig og að borðinn sé mótaður að undirlaginu með gúmmíkylfu.

Helstu eiginleikar

  • Mótast eftir tárustáli, rifflum og ójöfnum málmflötum
  • Álburðarlag án fjöðrunar — lyftist ekki aftur upp úr mynstrinu
  • Grófkorna áloxíðyfirborð með háum núningsstuðli, þurrt og blautt
  • Sterkt akrýllím, viðloðun við stál yfir 2000 g/25,4 mm²
  • Þolir −40 °C til +160 °C og stenst eldþolsprófun CAA/FAA spec 8
  • Hentar jafnt innandyra og utandyra

Breiddir

Svarti borðinn fæst hér í fimm breiddum: 25, 50, 75, 100 og 150 mm. Rúllulengd er 18,3 m.

Almennar breiddir í þeim litum sem eru í boði eru 25, 50 og 75 mm. Fleiri breiddir fást sem sérpöntun.

Litir

Mótanlegi Safety-Grip borðinn er almennt framleiddur í fimm litum. Talan á eftir RAL-númerinu er ljósendurkast yfirborðsins (LRV) — því meiri sem munurinn er á LRV borðans og undirlagsins, því betur sést hálkuvörnin.

  • Svartur (H3406N) — RAL 9004, LRV 0, 36 grit
  • Gulur (H3406Y) — RAL 1023, LRV 37,5, 36 grit
  • Svartur/gulur viðvörunarborði (H3406D) — RAL 9017 og 1003, LRV 0 og 43,5, 36 grit
  • Appelsínugulur (H3406O) — RAL 2004, LRV 18,3, 60 grit — sérpöntun
  • Hvítur (H3406W) — RAL 9003, LRV 72,3, 100 grit — sérpöntun

Aðrir RAL- og Pantone-litir eru framleiddir eftir pöntun og ráðast af magni. Hafðu samband ef þig vantar annan lit eða aðra breidd.

Tæknilegar upplýsingar

EiginleikiGildi
VörunúmerH3406N
LiturSvartur, RAL 9004
BurðarlagÁlþynna, 0,075 mm
Heildarþykkt1,12 mm
YfirborðÁloxíð, 36 grit
LímAkrýllím
ViðloðunYfir 2000 g/25,4 mm²
Losunarkraftur17,7 N/25 mm
Togþol148,63 N/25 mm
Núningsstuðull0,99 þurrt / 0,75 blautt
Hitaþol−40 °C til +160 °C
Ásetningarhiti10 °C eða hærri
EldþolCAA/FAA spec 8
Rúllulengd18,3 m

Núningsstuðull er mældur samkvæmt EN 16165:2021 með pendúlaðferð BS 7976-2 hjá óháðri rannsóknarstofu og viðloðun við stál samkvæmt PSTC-4. Tölurnar eru dæmigerð framleiðslugildi.

Svona er borðinn lagður

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi

Hálkuborði - breidd [mm]

25, 50, 75, 100, 150

Hálkuborði - grófleiki

Coarse – Grófkorna

Hálkuborði - lengd [mm]

18.3m

Hálkuborði - litur

Svartur

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].

Meira frá
Heskins
Skoða allt →
Þrjár rúllur af gulum mótanlegum hálkuborða Heskins H3406Y í mismunandi breiddum
Hálkuborði mótanlegur gulur

Gulur, mótanlegur hálkuborði frá Heskins með mjúku álburðarlagi og grófu áloxíðyfirborði. Mótast ofan í tárustál og riffluð stálþrep.…

Vnr: H3406Y
Sjá nánar