Motorola TLKR-T92 Talstöð PMR446 IP67
Motorola PMR446 TLKR-T92 talstöð. Motorola TLKR T92 H2O eru öflugar, vatnsheldar talstöðvar sem henta einstaklega vel fyrir útivist, vinnu og ævintýri við krefjandi aðstæður. Talstöðvarnar eru hannaðar til að þola vatn, ryk og högg og halda þér í sambandi, hvort sem þú ert á sjó, í fjöllum eða á vinnusvæðum þar sem áreiðanleiki skiptir máli.
T92 H2O talstöðvarnar eru IP67 vottaðar, sem þýðir að þær þola að vera á kafi í allt að einn meter í allt að 30 mínútur. Þær fljóta á vatni með meðfylgjandi NiMH rafhlöðum og eru því auðveldar í endurheimt ef þær detta í sjó eða vatn. Innbyggt LED ljós sem að er með hvítum og rauðum ljósstillingum og virkjast sjálfkrafa við snertingu við vatn, sem eykur öryggi við neyðaraðstæður.
Drægni er allt að 10 km við kjöraðstæður og bjóða þær upp á 8 rásir og 121 hljóðkóða til að tryggja skýra og truflanalausa samskipti. Sérstakur appelsínugulur neyðarhnappur virkjar handsfrjálst símtal og sendir frá sér háan viðvörunartón til annarra í hópnum.
Fylgiskjöl1 skjal
Tæknilýsing
Vörulýsing

Helstu eiginleikar
- PMR446 talstöðvar, leyfislaus notkun
- Drægi allt að 10 km við kjöraðstæður
- IP67 vatnsheldar, þola allt að 1 m dýpi í 30 mínútur
- Fljóta á vatni með meðfylgjandi rafhlöðum
- 8 rásir og 121 kóði
- Endurhlaðanlegar NiMH rafhlöður
- LED vasaljós með hvítu og rauðu ljósi, vatnsvirkjað
- Neyðarhnappur með viðvörunartóni
- Handsfrjáls VOX virkni
- Titringsviðvörun og 20 hringitónar
- Beltisklemmur með innbyggðri flautu
Í pakkningu
- 2 x Motorola TLKR T92 H2O talstöðvar
- 2 x NiMH endurhlaðanlegar rafhlöður
- 2 x beltisklemmur með flautu
- 1 x burðartaska
- 1 x bílahleðslutæki með 2 aftengjanlegum USB snúrum
- Notendaleiðbeiningar og fylgihlutahandbók
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | 1 kg |
|---|---|
| Framleiðandi |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 415 4000 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira fráMotorolaSkoða allt →

Motorola T82 800mA rafhlaða fyrir Motorola T62, T82, T82 Extreme og T92 (walkie-talkies) talstöðvar
Sjá nánar
Motorola Talkabout T82 Extreme Walkie-Talkie (Twin Pack) talstöðvar sem henta mjög vel til þess að tengja við Peltor…

Heyrnartól til að tengja við Motorola TalkAbout og TLKR talstöðvarnar. Kemur með míkrafón á bómu sem hægt er…