Veturo E er reiðhjólafesting fyrir 2 rafmagnsreiðhjól sem eru fest beint á dráttarbeisli, fullkomin, auðveld og þægileg lausn sem gerir þér kleift að taka rafmagnsreiðhjólið með þér í ferðalagið. Reiðhjólafestingin kemur með ljósbúnaði og 13 pinna rafmagnstengli.
-
Fjöldi reiðhjóla: 2 rafmagnsreiðhjól
-
Burðgargeta: 60 kg.
-
Þyngd reiðhjólafestingar: 19,5 kg.
-
Reiðhjólafestingin er læst við dráttarkrókinn
-
Hægt að halla festingunni til að bæta aðgengið í skottið
Hvers vegna er Veturo hjólagrind besti kosturinn?
Veturo grindin er besti og auðveldasti kosturinn til að flytja reiðhjól. Hægt er að fá grindur fyrir 2, 3 og 4 hjól sem þýðir að þær standast væntingar jafnvel kröfuhörðustu viðskiptavina.
Helstu kostirnir eru: Nútímaleg hönnun, ótrúleg þægindi, stuttur tími sem tekur að festa og losa hjól, halla má öllum Veturo-grindum sem gefur þér möguleika á að opna skottið jafnvel með hjólin á grindinni; örugg uppsetning án þess að rispa bílinn, engin loftmótstaða öfugt við grindur sem festar eru á þak bílsins.
Að auki er hægt að festa grindurnar á mismunandi gerðir bíla. Það eina sem þarf er dráttarkrókur.



























