Redashe Lubeworks J300 er tunnudæla fyrir þrýstiloft sem dælir í 3:1 hlutfallli. J300 tunnudælan hentar til dælingar á olíum s.s. smurolíu, gírolíu, sjálfskiptivökva og glussa og frostlög svo eitthvað sé nefnt en mesta seigja olíunnar SAE150. J300 dælan er fyrir 2″ BSP skrúfgang og rörið sem liggur niður í tunnuna er hæðarstillanlegt.
Upplýsingar:
- Hlutfall dælingar 3:1
- Vinnuþrýstingur: 5-8 bör /70-115 psi)
- Loftflæði @8bör > 110 L/mín
- Mesta loftflæði: 12 L/mín
- Loftinntak: 1/4″ Hraðtengi
- Úttak: 1/2″ gengjur
- Þvermál rörs niður: 42 mm








