Rafstöð Ducar bensín 3Kw 212Cc

Vörunúmer dg4650

68.700 kr.

Ducar DG4650 er 212Cc bensínknúin 230V rafstöð með 2.800 W málafli og 3.000 W hámarksafli. Hún hentar vel til að knýja verkfæri, lýsingu og annan almennan rafbúnað á vinnusvæðum, í sumarbústöðum eða sem varaafl þar sem rafmagn er ekki aðgengilegt.

Rafstöðin er búin AVR spennustýringu, tveimur 230V innstungum og 15 lítra eldsneytistanki. Sterk grind og handfang auðvelda flutning og uppsetningu.

ATHUGIÐ: Rafstöðin er afhent án smurolíu og þarf að fylla á hana með 10W-30 eða 15W-40 smurolíu áður en vélin er gangsett.

Fylgiskjöl

Á lager

Vörunúmer: dg4650 Flokkur: Stikkorð: Vörumerki: