Slátturóbótar

Sýni allar 2 niðurstöður

Slátturóbótar frá Greenworks sjá um reglulegan slátt á grasflötinni. AiMowbot C6 og C12 vinna án hefðbundins jaðarvírs og nota RTKVision leiðsögn ásamt myndavélum og skynjurum til að rata um garðinn og greina hindranir. Í snjallforriti geturðu skilgreint sláttusvæði og svæði sem róbótinn á að sleppa.

C6 eða C12 – veldu eftir stærð grasflatarinnar

Greenworks AiMowbot C6 er ætlaður fyrir grasflatir allt að 600 m² og hentar fyrir reglulegan slátt í minni görðum.
Greenworks AiMowbot C12 er ætlaður fyrir grasflatir allt að 1.200 m² og er kostur fyrir stærri garða.
Báðar gerðirnar eru með 20 cm sláttubreidd og stillanlega sláttuhæð frá 20 til 90 mm. Þær vinna eftir kerfisbundnu sláttumynstri og hægt er að stjórna þeim með snjallforriti.

Sláttur án jaðarvírs

AiMowbot slátturóbótar þurfa ekki hefðbundinn jaðarvír umhverfis grasflötina. Sláttusvæðið er skilgreint við uppsetningu og róbótinn notar RTKVision leiðsögn við sláttinn. Hindranagreining hjálpar honum að greina og forðast hluti á leið sinni.

Hvað þarf að skoða við val?

Veldu slátturóbót út frá stærð og aðstæðum grasflatarinnar. Skoðaðu einnig halla, þröngar leiðir og skiptingu garðsins í sláttusvæði.
Slátturóbótar, einnig kallaðir sláttuþjarkar eða sláttuvélmenni, eru ætlaðir til reglulegs viðhalds á grasflöt. Þessar gerðir eru ekki ætlaðar til að ryðja mjög hávaxið gras eða gróið óræktarland.
Berðu saman C6 og C12 hér að neðan og skoðaðu nánari upplýsingar um eiginleika og uppsetningu.

Vara væntanleg

Slátturóbótar

Greenworks AiMowbot C6 slátturóbot

Vnr: c6a1

198.750 kr.

Slátturóbótar

Greenworks AiMowbot C12 slátturóbot

Vnr: c12a1

239.750 kr.