Skordýraeitur – Skordýraúði
Skordýraeitur og skordýraúðar fyrir markvissar meindýravarnir á heimilum, vinnustöðum, lagerum og í atvinnuhúsnæði. Hér finnur þú lausnir gegn algengum skordýrum, svo sem flugum, maurum, köngulóm, silfurskottum, Veggjalús (bed bugs) og öðrum skordýrum sem geta valdið óþægindum eða mengun.
Úrvalið inniheldur bæði tilbúna skordýraúða og þykkni til blöndunar, eftir því hvaða aðstæður og umfang meðhöndlunar krefjast. Vörurnar henta til staðbundinnar notkunar og meðhöndlunar á svæðum þar sem skordýr halda sig eða fara um. Velja skal vöru eftir tegund meindýrs, notkunarsvæði og fyrirmælum framleiðanda.

