Dynatrans MPV GL-4 vökvakerfisolía er fjölnota UTTO vökva- og gírolía fyrir landbúnaðar- og vinnuvélar. Hún sameinar slitvörn, álagsþol og rétta núningseiginleika fyrir skiptingar, drif og blautbremsur.
Helstu eiginleikar
- Hentar skiptingum og drifum með blautum bremsum
- Góðir kuldaeiginleikar og stöðug smurning undir álagi
- Tæringar- og slitvörn fyrir gíra og glussakerfi
- Fjölnota lausn fyrir UTTO-notkun
Notkun
Fyrir gírkassa, vökvakerfi, drif, aflúttök og blautbremsur þar sem krafist er UTTO-vökva með API GL-4 og viðeigandi seigju.
Staðlar og samþykktir
| Alþjóðlegur staðall | API GL-4 |
|---|---|
| Samþykktir | Massey Ferguson CMS M1145; Valtra G2-08; Volvo CE WB 101; ZF TE-ML 03E/03L/05F/06P/17E/21F |
| Hentar fyrir | Case MS1207/MS1209; CNH MAT 3505/3509/3525/3526/3540; Caterpillar TO-2; John Deere JDM J20C; New Holland NH 410B/410C; Komatsu AXO 80; JCB 4000/2200; Ford M2C134-D |
Tæknilegar upplýsingar
| Framleiðandi | TotalEnergies |
|---|---|
| Magn | 20L, 208L |
Fylgið ávallt smur- og viðhaldsleiðbeiningum framleiðanda búnaðarins við val á olíu og seigju.







