Spaðaöryggi frá Flösser fyrir 12 og 24 volta rafkerfi í bílum, bátum, húsbílum og vinnuvélum. Öryggið ver rafrásina gegn yfirálagi og skammhlaupi — rauði liturinn er alþjóðlegur litakóði fyrir 10A samkvæmt DIN 72581-3 staðlinum og sjá má í gegnum húsið hvort þráðurinn er heill.
Tæknilýsing
- Straumur: 10A
- Spenna: allt að 32V
- Gerð: Standard spaðaöryggi (ATO)
- Breidd: 19 mm
- Litur: rautt
- Vörumerki: Flösser
Standard-gerðin (19 mm) er algengasta spaðaöryggið og passar í flesta fólksbíla, jeppa og vinnuvélar. Skiptu alltaf út fyrir öryggi með sömu amperatölu — aldrei setja sterkara öryggi en rásin er hönnuð fyrir.





