BOSCH

Bosch fyrirtækið í Stuttgart hefur framleitt íhluti í bifreiðar frá árinu 1886.

Lengi vel var heimamarkaðurinn sterkasta vígið fyrir þær vörur sem Bosch var að framleiða fyrir bílaframleiðendur og bílaverkstæði.

Þær nýjungar sem Bosch hefur kynnt til sögunnar í seinni tíð og eru orðin staðalbúnaður hjá mörgum framleiðendum eru m.a. skriðvörn (ESP),   innspýtingar fyrir diesel bifreiðar (Common Rail), leiðsögukerfi (Navigation), hraðastýringu með skynjurum (adaptive cruise control) nætursjón og margt fleira.

Bosch framleiðir í dag mikið úrval af skynjurum fyrir allar bifreiðar sem nýtast t.d. til að fylgjast með hraða, snúningshraða, þrýstingi, hljóðum, loftpúðaskynjara og fleiri þættir eru einnig stýrðir að hluta til með Bosch skynjurum.

Bilanagreiningartölvur eru sérgrein hjá Bosch enda skrifar fyrirtækið hugbúnað fyrir fjölmörg bílafyrirtæki sem notaður er til að vakta vélbúnað og rafkerfi bifreiða.

Næsta kynslóð bifreiða verður vafalaust sjálfkeyrandi að stórum hluta og þar er Bosch þegar í fremstu röð með þúsundir verkfræðinga að störfum til að sinna þessari þróun eingöngu.

Bosch er stærsta fyrirtæki heims sem ekki er skráð á hlutabréfamarkað og er með yfir 400.000 starfsmenn um allan heim.

Það er greypt inní stefnu félagsins að sinna vöruþróun umfram allt annað og þess vegna hefur Bosch verið í fararbroddi í bílgreininni í 70 ár.


BOSCH
Bosch 0 986 594 686 ABS-hjólhraðaskynjari; skynjari með leiðslu og bláu tengi, við Bosch umbúðir
ABS skynjari aftan BMW

Bosch 0 986 594 686 er ABS-hjólhraðaskynjari sem mælir snúning hjólsins fyrir hemlastýringu bílsins. Veljið eftir framleiðandanúmeri og…

Vnr: 0986594686BOSCH
14.557 kr.
Setja í körfu
Bosch Alternator 14V/150A – 0 986 084 070
Alternator 14V/150A

Bosch alternator 14v/150a með vörunúmeri 0 986 084 070 og Trade number 8407. Endurunnin skiptivara. Staðfestu alltaf samhæfni…

Vnr: 0986084070BOSCH
Sjá nánar